Ouissem Medouni, sem er fyrir rétti ákærður fyrir að hafa ásamt sambýliskonu sinni myrt barnfóstru þeirra í London, sakaði sambýliskonuna um morðið í dag.
Hann sagði hana hafa drekkt barnfóstrunni í baðinu þeirra og hrópaði í réttarsalnum: „Þú gerðir það!“
Medouni, sem er fertugur, sneri sér að Sabrinu Kouider og sagði: „Þú settir höfuðið á henni í vatnið“.
Í framhaldinu sagði hann við kviðdóminn: „Hún er mjög sterk kona, hún er fær um gera þetta.“
Medouni greindi frá því í réttarsalnum fyrr í vikunni að hann hefði reynt að lífga barnfóstruna Sophie Lionnet við áður en þau brenndu lík hennar.
Kouider er sögð hafa verið sannfærð um að Lionnet væri að njósna um sig fyrir fyrrverandi kærasta sinn Mark Walton, sem áður var í drengjasveitinni Boyzone. Taldi hún Walton hafa heitið fóstrunni frægð og fé ef hún veitti honum upplýsingar um sig.
Lionnet lést í september í fyrra, eftir að parið hafði þvingað upp úr henni játningu um tengsl sín við Walton, sem þau tóku að hluta til upp á myndbandið.
Dánarorsök Lionnet er ókunn vegna áverkanna sem hlutust er þau Medouni og Kouider reyndu að losa sig við lík hennar. Réttarmeinafræðingar segja lík Lionnet hafa verið marið og að rifbein og bringubein hafi verið brákuð. Þá áverka hafi hún fengið einum og hálfum til þremur dögum áður en hún lést.