Bandarísk flugmálayfirvöld hafa fyrirskipað að ítarleg rannsókn fari fram á þotuhreyflum svipaðir þeim sem voru í flugvél Southwest Airliens fyrr í vikunni þar sem kona lést.
„Ef blað í þotuhreyfli bilar vegna sprungumyndunar getur það orðið til þess að hreyfillinn stöðvist, brak fari úr honum,skemmdir verði á hreyflinum og flugvélinni og mögulega verði þrýstingsfall í farþegarýminu,“ sagði í tilkynningu flugmálayfirvalda.
Fyrirskipað hefur verið að allir þotuhreyflar af tegundinni CFM56-7B sem hafi verið notaðir í yfir 30.000 þúsund klukkustundir á flugi, verði rannsakaðir innan tuttugu daga.
Um er að ræða um 352 þotuhreyfla í Bandaríkjunum og samtals 681 víðs vegar um heiminn.
Nú þegar hafa 150 þotuhreyflar verið skoðaðir.
Hreyflarnir knýja Boeing 737-flugvélar áfram
Flugmálayfirvöldin höfðu áður fyrirskipað að 220 hreyflar yrðu skoðaðir.
Enginn flugrekstraraðili sem heyrir undir flugmálayfirvöld á Íslandi notar hreyfla af tegundinni CFM56-7B.