Nakinn maður vopnaður riffli skaut þrjá til bana og særði a.m.k. fjóra á veitingastað skammt frá Nashville í Bandaríkjunum.
Lögreglan í Nashville segir að atvikið hafi átt sér stað klukkan 3:25 um nótt á veitingahúsinu Waffle House í Antioch, sem er úthverfi suðaustur af Nashville.
Gestur á staðnum náði að taka byssuna af árásarmanninum. Honum tókst hins vegar að flýja á tveimur jafnfljótum. Lögreglan segir að maðurinn sé hvítur með stutt hár.
Three people were killed and four were wounded in a shooting at a Waffle House near Nashville, police say https://t.co/LJFHp27B4c pic.twitter.com/hXJnZeg9b6
— CNN (@CNN) April 22, 2018