Að minnsta kosti ellefu létust er flutningabíll sem var að flytja sykur ók á nokkur mótorhjól og hús í Indónesíu í dag.
Bíllinn var á leið niður hæð í Brebes á eyjunni Jövu á leið til höfuðborgarinnar Jakarta er bremsur hans biluðu. Bílstjórinn reyndi að hægja á sér með því að beygja til hliðar en lenti þá á bíl, þrettán mótorhjólum og sjö húsum.
„Nú eru ellefu látnir og sjö slasaðir,“ segir talsmaður lögreglunnar. Ekki er vitað hver örlög bílstjórans urðu á þessari stundu.
Umferðarslys eru algeng í Indónesíu þar sem bílum, rútum og lestum er oft illa við haldið.