Christine Hallquist var í gær valin frambjóðandi demókrata til embættis ríkisstjóra í Vermont og í forvali flokksins. Ef hún verður kjörin næsti ríkisstjóri þá verður hún fyrsti trans-einstaklingurinn til þess að gegna starfi ríkisstjóra í Bandaríkjunum.
Jafnframt var Ilhan Ombar efst í forvali demókrata til fulltrúadeildarinnar fyrir Minnesota en Ombar situr á ríkisþinginu í Minnesota. Ef hún verður kjörin í fulltrúadeildina verður hún ein fyrsta konan sem er bæði íslam-trúar og flóttamaður sem kjörin er í fulltrúadeildina. Ombar er ættuð frá Sómalíu.
Samtök LGBTQ fögnuðu mjög valinu á Hallquist í Vermont í gær á Twitter en hún á erfiða baráttu fyrir höndum við frambjóðanda repúblikana, Phil Scott, sem hefur verið ríkisstjóri frá árinu 2016.
HISTORY MADE! @christineforvt just became the first trans/non-binary gubernatorial candidate from a major political party in American history! Learn more: https://t.co/C1hCE0ZNvF pic.twitter.com/xdzPKK3Run
— Victory Fund (@VictoryFund) August 15, 2018
Meðal þátttakenda í forvalinu í Vermont var Ethan Sonneborn sem er fjórtán ára gamall. Nýtti hann sér það að hvergi er kveðið á um lágmarksaldur frambjóðenda. Með framboðinu vildi hann sýna fram á nauðsyn þess að koma í veg fyrir að þetta geti endurtekið sig.
Ef Omar verður kjörin á þing þá verður hún fyrsti flóttamaðurinn og önnur konan sem er múslimi sem er valin í forvali demókrata til þingmennsku í fulltrúadeildinni. Í síðustu viku var Rashida Tlaib efst í forvali demókrata í Detroit, Michigan, og þar sem sem hún er ein í kjöri þá er hún örugg um sæti í fulltrúadeildinni. Tlaib er ættuð frá Palestínu.
.@IlhanMN I can't wait to walk onto the floor of United States Congress hand in hand with you. So incredibly proud of you. pic.twitter.com/KEkhUBE6OQ
— Rashida Tlaib (@RashidaTlaib) August 15, 2018