Konan, sem stóð fyrir skotárás við vöruskemmur lækningavöruframleiðandans Rite Aid í Harford-sýslu, norðaustur af Baltimore í Maryland í Bandaríkjunum fyrr í dag, er látin. Þetta hefur AFP-fréttastofan eftir Jeff Gahler, lögreglustjóra Harford, sem segir hana hafa tekið eigið líf.
Greint var frá því fyrr í dag að þrír væru látnir eftir árásina og þrír til viðbótar hefðu særst.
Konan, sem var í tímabundnu starfi í vöruskemmunum, er sögð hafa notað skammbyssu við árásina. Ástæður árásarinnar liggja þó ekki fyrir.