Lögreglan í Kaupmannahöfn var kölluð út fyrr í kvöld í Ishøj í úthverfi Kaupmannahafnar vegna skotárásar. Lögreglufulltrúi segir í samtali við DR að tilkynning hafi borist um að skotið hafi verið á fólk, en að enginn hafi orðið fyrir skoti. Skotárásin í kvöld er sú níunda í Kaupmannahöfn á átta dögum.
Lögregla leitar nú að kampavínslituðum bíl í tengslum við skotárásin, en talið er að skotið hafi verið úr bílnum og vitni segja að minnsta kosti tvo hafa verið í honum.
Lögreglustjórinn í Kaupmannahöfn, Anne Tønnes, sagði í samtali við DR fyrr í dag að „ástandið alvarlegt“ en þrír særðust í skotárás á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Hún hvatti íbúa engu að síður til að halda daglegum venjum sínum.
Tønnes sagði lögreglu vinna út frá þeirri kenningu að skotárásin tengdist átökum á milli glæpagengja. „Við teljum að þetta sé hópur sem hefur klofnað í tvennt og sem nú deilir innbyrðis,“ bætti hún við.