Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið í skyn að „stjórnlausir morðingjar“ standi á bak við hvarf sádi-arabíska blaðamannsins Jamal Khashoggis. Trump lét þessi orð falla eftir símtal sem hann átti við Salman Sádakonung sem hann sagði harðneita að vita hvað hafi orðið af Khashoggi.
Khashoggi, sem var gagnrýninn á stjórnvöld í heimalandi sínu, kom á sádi-arabísku ræðismannsskrifstofuna í Tyrklandi 2. október til þess að verða sér úti um opinbera pappíra þannig að hann gæti gengið að eiga tyrkneska unnustu sína. Ekkert hefur spurst til hans síðan.
Sagði Trump Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, nú þegar vera á leið til Sádi-Arabíu.
Tyrkneskir fjölmiðlar greindu frá því fyrr í dag að tyrknesk og sádi-arabísk rannsóknarlögregla muni gera húsleit á ræðismannsskrifstofunni í dag. Tyrknesk yfirvöld telja Khashoggi hafa verið myrtan á ræðismannsskrifstofunni, en því neita stjórnvöld í Sádi-Arabíu.
Trump sagði neitun Salman konungs hafa verið „mjög, mjög kröftuga“. „Í mín eyru hljómaði þetta eins og þetta gætu hafa verið stjórnlausir morðingjar,“ sagði forsetinn. „Hver veit?“
Málið hefur valdið diplómatískum titringi og hefur óháðrar rannsóknar verið krafist frá ríkjum víða á Vesturlöndum. Þá var greint frá því fyrr í dag að Sádakonungur hefði fyrirskipað rannsókn á málinu.
„Konungur hefur skipað ríkissaksóknara að hefja innri rannsókn á Khashoggi málinu sem byggja á á niðurstöðum sem sameiginlega teymið í Istanbúl kemst að,“ hefur Reuters fréttastofan eftir heimildamanni.
BBC segir viðbrögð konungs koma í kjölfar þess að sífellt fleiri valdamenn í viðskiptalífinu tilkynna að þeir ætli ekki að taka þátt í fjárfestingaráðstefnu sem haldin verður í Riyadh síðar í mánuðinum.
Jamie Dimon, yfirmaður JP Morgan, er sá síðasti í röð hátt settra stjórnenda sem hætti við þátttöku í ráðstefnunni sem ber heitið „Davos í eyðimörkinni“ og sem beina á athyglinni að umbótatillögum krónprinsins Mohammed bin Salmans.