17 eru látnir eftir að farþegalest fór út af spori í Taiwan. Slysið átti sér stað í Yilan-sýslu nú í morgun samkvæmt heimildum yfirvalda. 80 manns eru slasaðir samkvæmt samgönguyfirvöldum en um 310 manns voru um borð í lestinni þegar slysið varð.
Mynd sem BBC birtir á Twitter-aðgangi sínum af vettvangi sýnir hvernig lestin hafnaði utan teinanna og lá þvert yfir leiðina þar sem slysið varð.
At least 17 people reported dead and dozens hurt after passenger train derails in Taiwan https://t.co/2Vei0YTZ4A
— BBC Breaking News (@BBCBreaking) October 21, 2018