Stór hópur þeirra hælisleitenda sem nú eru á leið í gegnum Mexíkó að landamærum Bandaríkjanna kom til landamæraborgarinnar Tijuana í dag. Um 1.500 manns úr hópi rúmlega 5.000 hælisleitenda eru nú komnir að landamærunum og segir AFP-fréttaveitan um 800 hælisleitendur hafa komið til borgarinnar um borð í 22 rútum, eftir rúmlega mánaðargöngu.
„Við erum loksins komin til Tijuana. Ég get ekki beðið eftir að sjá landamærin. Þetta hefur verið endalaust ferðalag, en Guð kom okkur hingað,“ sagði Carmen Soto sem kom frá Hondúras með tveimur ungum börnum sínum.
Bandaríkjamegin landamæranna bíða um 6.000 hermenn, sem hafa undanfarið unnið að því að reisa hindranir og gaddavírsgirðingar til að halda hópinum úti, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst þeirri fyrirætlan hópsins að komast til Bandaríkjanna sem „árás“.
Fólkið, sem kemur frá Hondúras, Gvatemala og El Salvador, segist vera að flýja ofsóknir, fátækt og ofbeldi í heimalandi sínu og hefur verið harðákveðið í að halda ferðalagi sínu áfram.
Samkvæmt bandarískum lögum ber yfirvöldum að taka til efnislegrar meðferðir hælisósk þeirra sem komnir eru yfir til Bandaríkjanna, ef þeir segjast óttast ofbeldi í heimalandi sínu.
Í síðustu viku undirritaði Trump hins vegar forsetatilskipun sem bannar þeim hælisleitendum sem koma ólöglega til landsins tímabundið að óska eftir hæli. Þeir geta eftir sem áður sótt um hæli fari þeir inn í landið á tilteknum landamærastöðvum.