Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa vísað Bandaríkjamanni úr landinu sem var handtekinn við komuna þangað í síðasta mánuði. Samkvæmt ríkisfréttastofunni KCNA kom hann ólöglega til Norður-Kóreu frá Kína.
Samkvæmt frétt KCNA sagðist maðurinn, Bruce Byron Lowrance, vera undir stjórn bandarísku leyniþjónustunnar CIA.
Manni með sama nafni var vísað frá Suður-Kóreu á síðasta ári, eftir að hann fannst rétt við landamæri Norður-Kóreu. Ekki hefur fengist staðfest hvort um sama mann sé að ræða. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um málið.
Þegar manninum var vísað frá Suður-Kóreu í fyrra var greint frá því í bandarískum fjölmiðlum að hann vildi gera sitt til að minnka spennuna á milli Kóreuríkjanna.