Indverski trúarleiðtoginn Ram Rahim Singh hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi vegna morðs á blaðamanni sem kom upp um nauðganir Singh gagnvart fylgjendum sínum. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að nauðga tveimur konum og situr inni.
Blaðamaðurinn Ram Chander Chhatrapati var myrtur eftir að hann greindi frá málinu. Þrír menn til viðbótar voru einnig dæmdir í lífstíðarfangelsi.
Chhatrapati birti nafnlaust bréf í dagblaðinu Poora Sach árið 2002 þar sem Singh var sakaður um að hafa nauðgað bréfritara ítrekað og nokkrum öðrum konum í söfnuðinum.
Sonur hins myrta blaðamanns sagði í viðtal fyrir tólf árum að kollegar hans í blaðamannastéttinni hefðu varað hann við því að birta bréfið vegna þess að hann ætti á hættu að verða skotinn vegna þess.
Chhatrapati var myrtur mánuði eftir að bréfið birtist í dagblaðinu.
Miðlæg rannsóknardeild lögreglu hóf rannsókn í kjölfarið en það tók nokkur ár að hafa uppi á meintum fórnarlömbum. Það var ekki fyrr en árið 2007 sem tvær konur stigu fram og lögðu fram kæru gegn trúarleiðtoganum.