Allt að 1.000 gætu hafa látist

Forseti Mósambík segir að tala látinna vegna hitabeltisstormsins Idai, sem skall á borginni Beira með mikilli eyðileggingu á fimmtudag, gæti farið upp í 1.000 á næstu dögum.

Idai skall á með vindhviðum allt að 50 m/s á fimmtudag, en aðstoð barst ekki fyrr en þremur dögum síðar. Opinber dánartala í Beira er 84 en alls hefur fengið staðfest að 160 liggi í valnum vegna stormsins í suðurhluta Afríku.

Í heimsókn til Beira sagði forsetinn, Filipe Nyusi, að áhrif stormsins væru hrikaleg og að hann hefði séð lík fljótandi í vatnsflaumnum.

Opinber dánartala í Beira er 84 en alls hefur fengist …
Opinber dánartala í Beira er 84 en alls hefur fengist staðfest að 160 liggi í valnum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert