Yfirvöld í Austur-Kongó hafa handtekið ellefu í tengslum við morð á lækni hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) sem vann við að sporna við útbreiðslu ebólu í landinu.
Dómari í Nord-Kivu í austurhluta landsins sagði að talið væri að þrír hinna grunuðu hefðu skotið lækninn Richard Valery Mouzoko Kiboung til bana 19. apríl. Hinir væru grunaðir um aðild að morðinu.
Fram kom í yfirlýsingu heilbrigðisyfirvalda í Austur-Kongó að vonir stæðu til að þessar handtökur yrðu til þess að ná fram réttlæti í tengslum við morð á heilbrigðisstarfsmanni.
Mouzoko var skotinn til bana í árás á spítala í borginni Butembo. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að hann hafi verið fluttur þangað sem hluti af læknateymi sem átti að sporna við útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó.
885 hafa látið lífið í faraldri sem hefur geisað í Austur-Kongó frá því í ágúst. Litlar líkur eru taldar á því að faraldurinn nú geti breiðst út á heimsvísu.
Neyðarástandi vegna ebólu var síðast lýst yfir vegna ebólufaraldurs í Vestur-Afríku 2013-2016 þegar yfir 11 þúsund létust í ebólu-faraldri. 2016 var einnig lýst yfir neyðarástandi vegna Zika-veirunnar.