Mette Frederiksen, formaður flokks danskra jafnaðarmanna, kynnti í morgun nýja ríkisstjórn Danmerkur í stjórnarráðinu.
Líkt og áður hefur komið fram tekur Mette við forsætisráðuneytinu af Lars Løkke Rasmussen og verður yngsti forsætisráðherra í sögu Danmerkur.
Hún mun leiða minnihlutastjórn flokks síns, sem studd verður af þingmönnum Einingarlistans, Sósíalíska þjóðarflokksins og miðjuflokksins Radikale Venstre. Samanlagt hafa flokkarnir 91 sæti á þingi, 93 séu þingmenn færeyskra og grænlenskra systurflokka meðtaldir, af 175 á danska þinginu.
Ríkisstjórn hennar skipa alls 20 ráðherrar.
Ný ríkisstjórn Danmerkur:
Mette Frederiksen, forsætisráðherra.
Nicolai Wammen, fjármálaráðherra.
Jeppe Kofod, utanríkisráðherra.
Nick Hækkerup, dómsmálaráðherra.
Astrid Krag, félags- og innanríkismálaráðherra.
Morten Bødskov, skattamálaráðherra.
Dan Jørgensen, loftslags-, orku- og birgðamálaráðherra.
Mogens Jensen, matvæla- og sjávarútvegsráðherra, jafnréttismálaráðherra, Norðurlandamálaráðherra.
Magnus Heunicke, heilbrigðisráðherra og ráðherra um málefni eldri borgara.
Benny Engelbrecht, samgönguráðherra.
Rasmus Prehn, þróunarmálaráðherra.
Pernille Rosenkrantz-Theil, barna- og kennslumálaráðherra.
Trine Bramsen, varnarmálaráðherra.
Ane Halsboe-Jørgensen, mennta- og rannsóknarmálaráðherra.
Simon Kollerup, vinnumálaráðherra.
Mattias Tesfaye, útlendinga- og samþættingamálaráðherra.
Peter Hummelgaard, atvinnumálaráðherra.
Kaare Dybvad, húsnæðismálaráðherra.
Lea Wermelin, umhverfisráðherra.
Joy Mogensen, menningar- og kirkjumálaráðherra.