Fjórir kennarar hafa höfðað mál gegn Delta Airlines eftir að farþegaflugvél flugfélagsins losaði eldsneyti yfir nokkra grunnskóla í Los Angeles.
Vélin tók á loft frá alþjóðaflugvellinum í Los Angeles á þriðjudag en þurfti að snúa við skömmu eftir flugtak vegna vélarvandræða og þurfti að losa sig við eldsneyti áður en hún hélt inn til nauðlendingar.
Ekki vildi þó betur til en svo að eldsneytið hafnaði á skóla og skólalóð nokkurra grunnskóla í borginni og á fjölda manns sem þar voru utandyra á leikvelli.
17 börn og níu fullorðnir þurftu á aðhlynningu að halda eftir að hafa fengið eldsneytið yfir sig. Fjórir kennarar ætla að fara fram á miskabætur vegna málsins.
„Umbjóðendur mínir fundu fyrir eldsneytinu á fötum sínum, húð og augum,“ segir lögmaður kennarana. Eldsneytið fór einnig í nef og munn kennaranna sem olli þeim verulegum óþægindum. Málið var þingfest í Los Angeles á föstudag en forsvarsmenn Delta hafa ekki tjáð sig um málsóknina.
Flugvélar mega losa eldsneyti til þess að létta sig í neyðartilvikum, en flugumferðarstjórar verða þá að vara þá við sem gætu orðið fyrir eldsneytinu.