Almenningssamgöngur verða stöðvaðar í kínversku borginni Wuhan vegna nýs lungnasjúkdóms sem hefur orðið sautján manns að bana.
Alls búa um 8,9 milljónir manna í borginni og hafa yfirvöld sagt þeim að nota ekki almenningssamgöngur, að sögn BBC.
Frá klukkan 10 í fyrramálið að kínverskum tíma mega íbúar Wuhan ekki ferðast með strætó, neðanjarðarlestum, ferjum og öðrum farartækjum sem ferðast langar vegalengdir.
Yfirvöld í Kína hafa gripið til margvíslegra ráða til þess að reyna að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn breiðist frekar út en hann er þegar kominn til nokkurra héraða auk annarra landa, svo sem Bandaríkjanna, Taílands og Suður-Kóreu.