Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að takmarka ferðalög Kínverja til annarra landa. Frá og með mánudegi verða skipulagðar hópferðir bæði til og frá Kína bannaðar og sala á slíkum hópferðum stöðvuð tímabundið.
Ferðatakmarkanir þessar eru settar til þess að reyna að stemma stigu við útbreiðslu Wuhan-veirunnar svokölluðu, nýrrar kórónaveiru sem hefur dregið tugi til bana undanfarna daga.
Á annað þúsund hafa veikst af veirunni og hið minnsta fjörutíu látist. Þá hefur kórónaveiran greinst í fjölda Asíulanda, og í Ástralíu, Bandaríkjunum og Frakklandi.