Nokkuð vandræðaleg stemning myndaðist þegar konunglegi sjóherinn í Ástralíu vígði nýtt flotaskip fyrir augum ráðamanna í gær.
Ekki var það skipið sem vakti skiptar skoðanir heldur fáklæddir dansarar sem fengnir voru til að stíga á stokk við vígsluna – gekk einn þingmaður svo langt að kalla sýninguna algjöran sirkus (e. shitshow).
Ástralski miðillinn ABC Sydney ræddi við annan þingmann og fyrrum hermanninn Philip Thompson um atvikið. Lagið hann áherslu á að mestu máli skipti að hafa öflugan sjóher, dansararnir væru aukaatriði. Þó hafði hann þetta að segja:
„Embættismenn, alþingismenn og herforingjar eru hér viðstaddir og þá finnst mér twerk-dans (e. twerking) ekki viðeigandi.“
Dansararnir stóðu sig með eindæmum vel en sitt má hverjum sýnast um hvort staður og stund hafi verið við hæfi: