Skipuleggjendur Ólympíuleikanna í Tókýó hyggjast gefa 150.000 smokka á leikunum í næsta mánuði. Þeir hvetja þó keppendur til að nota þá frekar heima en í ólympíuþorpinu, þar sem samkomutakmarkanir og sóttvarnaaðgerðir eru í hávegum hafðar.
Fjölda smokka hefur verið dreift síðan Ólympíuleikarnir áttu sér stað í Seúl árið 1988, í því skyni að vekja athygli á eyðni og alnæmi, og verður því haldið áfram að ósk ólympíunefndarinnar.
Keppendur leikanna hafa þó verið beðnir að virða fjarlægðartakmarkanir, sem dregur um leið úr líkunum á að þeir rugli saman reytum.
„Smokkarnir eru ekki ætlaðir til notkunar í ólympíuþorpinu, heldur eiga keppendur að taka þá með sér heim, til að vekja athygli á málefninu í sínu heimalandi,“ segir í svari skipuleggjenda leikanna við spurningum fréttastofunnar Reuters.
Yfirvöld í Tókýó hafa nú þegar bannað áhorfendur frá öðrum löndum á leikunum. Þá hafa þau beðið þá heimamenn, sem hyggjast mæta til að horfa á, að sýna stuðning með því að klappa í stað þess að fagna með hrópum og köllum, til þess að minnka líkurnar á mögulegri dreifingu kórónuveirunnar.
„Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir hópsmit. Það krefst samvinnu allra þeirra sem koma að keppninni,“ sagði Nobuhiko Okabe smitsjúkdómafræðingur á blaðamannafundi á föstudag.