Nærri tuttugu og eitt þúsund skjálftar hafa mælst á tæpri viku, undir eldfjallahryggnum Cumbre Vieja á eyjunni La Palma sem tilheyrir Kanaríeyjunum.
Frá þessu greinir INVOLCAN, eldfjallafræðistofnun Kanaríeyja.
Á korti sem stofnunin hefur gefið út má sjá staðsetningar helstu skjálftanna sem riðið hafa yfir eyjuna frá því hrinan hófst þar á laugardag. Stærsti skjálftinn til þessa mældist 3,4 að styrkleika.
Fjallað var á mbl.is í gær um viðvaranir yfirvalda eyjaklasans vegna þess að eldgos geti mögulega verið í vændum.
„Við getum ekki gert spá til skamms tíma,“ var haft eftir Maríu José Blanco, forstjóra Jarðfræðistofnunar Kanaríeyja, í umfjöllun spænska dagblaðsins El País í gær.
„En allt bendir til þess að þetta muni þróast í stærri jarðskjálfta sem verða kröftugri og sem fólk mun finna fyrir.“