Vladimír Makei utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands hefur orðið bráðkvaddur. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir talsmanni utanríkisráðuneytisins í Hvíta-Rússlandi, Anatólí Glas.
Makei hafði verið utanríkisráðherra í landinu frá árinu 2012 og til stóð að hann myndi funda með kollega sínum frá Rússlandi, Sergei Lavrov, á mánudaginn.
Hvíta-Rússland á landamæri bæði að Rússlandi og Úkraínu en Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, er náinn samherji Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta.