Bilun varð í Takahama-kjarnorkuverinu í Fukui í Japan í morgun þegar einn fjögurra kjarnaofna slökkti á sér vegna viðvörunar. Óvenjulega hröð fækkun nifteinda leiddi til viðvörunarinnar, samkvæmt yfirlýsingu frá Kjarnorkueftirlitsstofnuninni í Japan.
Ekki hefur orðið vart við aukna geislun vegna bilunarinnar og kjarnaofninn er samkvæmt yfirlýsingunni að kæla sig með eðlilegum hætti.
Ríkismiðillinn NHK segir yfirvöld í Fukui hafa sagt ekkert óeðlilegt við hitastig eða þrýsting á kjarnaofninum áður en bilunin átti sér stað.
Rekstraraðili kjarnorkuversins, Kansai Electric Power Co, sagði rannsókn standa yfir á orsök bilunarinnar. Kjarnaofninn var yfirfarinn í lok síðasta árs samkvæmt skipulagðri viðhaldsdagskrá.