Dmitrí Medvedev, fyrrrverandi forseti Rússlands, segir að rússnesk stjórnvöld muni líta á allar tilraunir til að handtaka Vladimír Pútín Rússlandsforseta, eftir að Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn gaf út handtökuskipun á hendur honum, sem stríðsyfirlýsingu.
Medvedev, sem var forseti árin 2008 til 2012, hefur verið sífellt opinskárri í ummælum sínum eftir að Pútín sendi hermenn inn í Úkraínu.
Seint í gærkvöldi sagði hann að hægt væri að beita rússneskum vopnum gegn hvaða þjóð sem er yrði Pútín handtekinn.
Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn í Haag gaf í síðustu viku út handtökuskipun á hendur Pútín fyrir að flytja úkraínsk börn úr landi.
„Ímyndum okkur – það er ljóst að þetta er staða sem mun aldrei koma upp – en samt sem áður ímyndum okkur að þetta gerist,“ sagði Medvedev.
„Núverandi leiðtogi kjarnorkuríkis mætir á svæðið, til dæmis í Þýskalandi, og er handtekinn. Hvað á það að þýða? Stríðsyfirlýsing gegn Rússlandi,“ bætti hann við.
Hann hélt áfram og sagði að ef þetta gerðist myndu „öll okkar úrræði, eldflaugar og annað, fljúga í átt að Bundestag [þýska þinghúsinu], á skrifstofu kanslarans og svo framvegis.“
Medvedev, sem er varaformaður rússneska öryggisráðsins, sagði að samskipti Rússa við Vesturlönd eigi eftir að versna enn frekar vegna ákvörðunar dómstólsins.