Þjóðarmorð í Súdan

Börn bíða í röð við brunn í ríkinu Gedaref í …
Börn bíða í röð við brunn í ríkinu Gedaref í austurhluta Súdans. AFP/Ebrahim Hamid

Stórfellt mannfall af völdum hungursneyðar vofir yfir í Súdan og eru milljónir manna á vergangi. Alvarlegasti flóttamannavandi heims er sagður eiga sér stað í þessu Afríkuríki og þarf rúmlega helmingur þjóðarinnar nauðsynlega á hjálp að halda. Mannréttindasamtök segja þjóðarmorð eiga sér stað í vesturhlutanum og er kallað eftir aðgerðum alþjóðasamfélagsins.

Sameiginleg skýrsla 92 mannréttinda- og hjálparsamtaka dregur upp hryllilega mynd af ástandinu í landinu. Vopnuð átök stríðandi fylkinga, sem staðið hafa síðan í apríl á síðasta ári, koma í veg fyrir að hjálpargögn berist nauðstöddum. Vopnaðar sveitir stjórnarandstæðinga eru sagðar beita konur og stúlkubörn kynferðislegu ofbeldi og hafa heilu þorpin verið brennd. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka