Að minnsta kosti fjórir eru látnir og um 30 slasaðir eftir að þak tveggja hæða húss hrundi á eyjunni Mallorca austur af Spáni. Slysið átti sér stað á vinsæla ferðamannasvæðinu Playa de Palma.
Viðbragðsaðilar voru kallaðir til um kl. 20.30 að staðartíma, 18.30 að íslenskum. Sjónarvottar segja að þak á vinsælum veitingastað hafi hrunið, enn er óvíst hvers vegna, að því er Majorca Daily Bulletin greinir frá.
Spænska dagblaðið Diario de Mallorca greinir frá því að allir tiltækir viðbragðsaðilar hafi verið kallaðir út. Miðillinn segir að hið minnsta fjórir hafi látið lífið og hátt í 30 slasast.
Dagblaðið segir að hátt í þúsund manns hafi safnast til að fylgjast með aðgerðunum, auk þess sem að borgarstjórinn í Palma mætti á vettvang til að ræða við viðbragðsaðila.
🔴 Los equipos de emergencia trabajan en el rescate de las víctimas en el edificio derrumbado en la playa de Palma, en el que han muerto al menos dos personas
— Cadena SER (@La_SER) May 23, 2024
Por @SERmallorca pic.twitter.com/VVTJZEHtm1