Persson: Svíar haldi staðfestingarferlinu áfram

Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í dag að Svíar ættu ótrauðir að halda áfram staðfestingarferli stjórnarskrár Evrópusambandsins, þrátt fyrir að Bretar hafi ákveðið að fresta fyrirætlaðri atkvæðagreiðslu um hana. En Persson sagði ennfremur að tilgangslaust væri að halda áfram ef stjórnarskráin yrði tekin til endurskoðunar.

Fyrirhugað er að sænska þingið greiði atkvæði um stjórnarskrána í desember. Eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu henni í síðustu viku sagði Persson að staðfestingarferlið yrði stöðvað ef annaðhvort ríkjanna myndi reyna að fá stjórnarskrána endurskoðaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert