Fékk sexbura í jólagjöf

Sexburarnir í súrefniskössum í Plaza de la Salud sjúkrahúsinu í …
Sexburarnir í súrefniskössum í Plaza de la Salud sjúkrahúsinu í Santo Domingo. AP

Kona í Dóminíkanska lýðveldinu eignaðist sexbura sl. mánudag, þrjár stúlkur og þrjá drengi. Öll börnin lifa þótt smá séu en þau vógu um 900 grömm hvert um sig. Einn drengurinn var settur í öndunarvél en hin börnin eru í súrefniskössum.

Foreldrarnir, Maxima Perez og Emilion Figuerero, eiga fyrir fimm ára dóttur. Maxima gekkst undir frjósemismeðferð þegar þeim hjónum gekk illa að eignast fleiri börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert