Mikil flóð eru nú í Dóná og þverám hennar í Serbíu og Búlgaríu og hefur yfirborð árinnar víða náð methæðum. Her Serbíu hefur verið kallaður út til að styrkja varnargarða. Vatn hefur flætt yfir götur í Belgrad á ármótum Dónár og Sava og hefur fólk verið flutt á brott.
Í Búlgaríu hefur verið lýst yfir neyðarástandi meðfram Dóná. Verið er að undirbúa brottflutning tuga þúsunda manna.