Tveimur eldflaugum skotið inn í Ísrael

Herskáir Palestínumenn skutu tveimur eldflaugum inn í Ísrael af Gaza í dag að sögn ísraelska hersins. Önnur flaugin lenti skammt sunnan við borgina Ashkelon. Engan mun þó hafa sakað við árásina. Samkvæmt vopnahléssamkomulagi Ísraela og Palestínumanna fór Ísraelsher frá Gaza gegn því að hætta eldflaugaárásum, engu að síður hefur rúmlega 100 eldflaugum verið skotið þaðan inn í Ísrael.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert