Ísraelar sleppa 250 palestínskum föngum

Mahmoud Abbas og Ehud Olmert eftir fund sinn í dag
Mahmoud Abbas og Ehud Olmert eftir fund sinn í dag Reuters

Ísraelar sögðust í dag ætla að sleppa 250 palestínskum föngum úr haldi síðar í þessari viku, en þetta er hluti af viðleitni Ísraela til að styrkja Mahmoud Abbas. forseta Palestínu í sessi. Ísraelar tilkynntu þetta í kjölfar fundar ísraelska forsætisráðherrans Ehud Olmerts og Abbas í dag.

Jacob Galanti, einn aðstoðarmanna Olmerts, sagði blaðamönnum í dag að listi yfir Palestínumennina sem sleppa á verði birtur á morgun, en um 85% þeirra munu tilheyra Fatah hreyfingu Abbas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert