Gamli og nýi strætó á rauðum dregli

Fertugur strætisvagn fékk að prófa rauða dregilinn fyrstur.
Fertugur strætisvagn fékk að prófa rauða dregilinn fyrstur. mbl.is/Golli

Ný forgangsakrein á Miklubraut í Reykjavík fyrir strætisvagna var opnuð með pompi og prakt í dag. Ók virðulegur strætisvagn frá árinu 1968 fremstur en á eftir honum fylgdi nýmóðin metanbíll. Á undan gengu félagar í lúðrasveitinni Svani.

Það voru þau Kristján L. Möller, samgönguráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sem opnuðu akreinina formlega á Miklubraut við Skeiðarvog.  Akreinin er með rauðu malbiki og hefur stundum verið nefnd rauði dregillinn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Loka