Stúlka lést þegar faðir hennar ók yfir hana

Tíu ára gömul stúlka lét lífið þegar faðir hennar lagði bíl sínum í laufahrúgu þar sem hún faldi sig ásamt vinkonu sinni í Methuen í Massachusetts í Bandaríkjunum í dag. Vinkona hennar, sem er átta ára, er alvarlega slösuð.

Faðirinn, James Gravel, sem er 36 ára byggingaverkamaður, vissi ekki að hann hefði keyrt yfir stúlkurnar fyrr en hann heyrði dóttur sína, Natalie, kalla á hann. „Hún sagði: „Pabbi, ég get ekki andað“,“ segir systir Gravels, Jennifer. Natalie var flutt á sjúkrahús, þar sem hún lést af bringu- og höfuðáverkum. Vinkona hennar, Meredith Reid, er í lífshættu.

Að sögn lögreglu verður Gravel ekki kærður, en hin tvö börn hans, ellefu og sjö ára, voru með honum í bílnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert