Bandaríska leikkonan Teri Hatcher, sem leikur eina af aðþrengdu eiginkonunum í samnefndum sjónvarpsþætti, segist hafa orðið fyrir svo miklum fjárhagslegum skakkaföllum eftir skilnað við Jon Tenney, fyrrum eiginmann sinn, að hún ætli aldrei aftur að borga reikninginn þegar hún fer á stefnumót á veitingastöðum.
Parið skildi að borði og sæng fyrir tveimur árum eftir níu ára hjónaband. Þótt hún vildi ekki fara nánar út í skilnaðarmálið í samtali við contactmusic.com viðurkennir hún að framfæsla hennar sé afar lítil.
„Segjum sem svo, að ég borgi aldrei aftur fyrir mat. Ég mun aldrei nota greiðslukortið mitt á stefnumóti aftur,“ sagði hún.