Manchester United gerði jafntefli við utandeildarliðið Burton

Darren Tinson, Burton, og Louis Saha, United, berjast um boltann …
Darren Tinson, Burton, og Louis Saha, United, berjast um boltann í leik liðanna í dag. Reuter

Manchester United og utandeildarliðið Burton Albion gerðu markalaust jafntefli í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í dag. Leikurinn fór fram á heimavelli Burton Albion en liðin þurfa nú að mætast aftur til þess að skera úr um hvort liðið kemst áfram í fjórðu umferð bikarkeppninnar. United og Burton munu spila á Old Trafford (heimavöllur United) 18. janúar.

Sjá einnig enski.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert