Lyktin vísaði á landabruggið

Lögreglan á Hvolsvelli var á laugardagskvöld kölluð að fjölbýlishúsi á Hellu vegna einkennilegar lyktar frá kjallara. Þegar lögreglan kom á staðinn þá greip hún þrjá erlenda menn við þá iðju að sjóða landa.

Lögreglan lagði hald á allan búnað til verksins auk nokkurra lítra af glærum vökva sem ætla má að sé heimagert áfengi. Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert