Breska ríkisútvarpið (BBC) hefur ákveðið að hætta framleiðslu á tónlistarþættinum Top of the Pops eftir 42 ár. Fram kemur í tilkynningu að ákveðið hafi verið að hætta með þáttinn sökum þess að áhorfið hefur farið minnkandi. Í fyrra var reynt að endurlífga upp á þáttinn með því aðfæra hann frá BBC1 til BBC2. Það misheppnaðist hinsvegar. Búist er við því að síðasti þátturinn verði sýndur nú í sumar.