Eiríkur Helgason í sjötta sæti yfir bestu jaðaríþróttamennina

Íþróttadeild sænska dagblaðsins Aftonbladet setur ungan Akureyring, Eirík Helgason, í sjötta sæti á lista yfir tíu bestu jaðaríþróttamennina að mati blaðamannsins Anders Neuman. Eiríkur þykir afar fimur á snjóbretti og segir Neuman að styrktaraðilar innan íþróttarinnar hljóti að fara að koma auga á hann.

Í fyrsta sæti er skíðagarpurinn Tanner Hall, Jacob Wester í öðru sæti, sem einnig iðkar skíðaíþrótt og Shaun White snjóbrettagarpur er í því þriðja. Fréttina og listann má nálgast með því að smella á tengilinn.

Listinn hjá Aftonbladet

Myndir af Eiríki að sýna listir sínar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert