Aðeins tveir í framboði til varaformanns

Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi, tilkynnti um framboð til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í dag. Fyrir fundinn höfðu alþingismennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson og Lúðvík Bergvinsson tilkynnt um framboð og er því kjörið milli þessara þriggja á fundinum. Varaformannskjörið er að hefjast á landsfundinum í Egilshöll og er búist við að niðurstaðan liggi fyrir á þriðja tímanum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert