Rúnar Guðjónsson settur ríkislögreglustjóri í Baugsrannsókn

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur sett Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, í embætti ríkislögreglustjóra til að fara með rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi Group.

Hæstiréttur kvað upp þann dóm í vikunni, að Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, bæri að víkja sæti við rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert