Jónína S. Lárusdóttir skipuð ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu

Jónína S. Lárusdóttir
Jónína S. Lárusdóttir

Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, hefur í dag skipað Jónínu S. Lárusdóttur, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu frá 1. ágúst 2007. Jónína útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1996 og lauk mastersgráðu frá London School of Economics and Political Science árið 2000. Hún hóf störf í viðskiptaráðuneytinu haustið 2000 og var skipuð skrifstofustjóri þar árið 2004.

Jónína er 36 ára, gift Birgi Guðmundssyni, viðskiptastjóra hjá Landsbankanum í London og eiga þau eitt barn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert