Stekkjastaur kom til byggða í dag, fyrstur þrettán bræðra, sem kalla sig jólasveina. Stekkjastaur ber sig vel þrátt fyrir að hafa barist í gegn um óveður á leið ofan af fjöllum, en segir að börn á Íslandi megi vera lítið eitt þægari, svo þau sleppi við að fá kartöflu í skóinn.