Gagnrýna ráðningu nýs ferðamálastjóra

Ólöf Ýrr, nýr ferðamálastjóri ásamt iðnaðarráðherra.
Ólöf Ýrr, nýr ferðamálastjóri ásamt iðnaðarráðherra.

Félag háskólamenntaðra ferðamálafræðinga (FHF) telur ráðningu nýs ferðamálastjóra algjörlega á skjön við þróun íslenskra ferðaþjónustu undanfarin ár og ekki í takt við þarfir greinarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FHF.

„Auglýst var eftir einstaklingum með menntun sem nýttist í starfi og þekkingu á Íslandi og íslenskri ferðaþjónustu. Meðal umsækjenda voru a.m.k. 7 umsækjendur með sérhæfða háskólamenntun af sviði ferðamála auk víðtækrar reynslu í atvinnugreininni. Meðal þessara umsækjanda var t.a.m. Ársæll Harðarson, markaðsstjóri Ferðamálastofu.

Undanfarin ár hefur ferðaþjónustu á Íslandi vaxið fiskur um hrygg og aukningin í fjölda ferðamanna og gjaldeyristekna hefur verið mikil.

Stjórnvöld hafa í auknum mæli áttað sig á mikilvægi þessarar atvinnugreinar fyrir þjóðarbúið og menntunarstig innan hennar hefur aukist jafnt og þétt, bæði meðal stjórnenda fyrirtækjanna og annarra starfsmanna. Samtök ferðaþjónustunnar hafa undanfarin misseri lagt aukna áherslu á eflingu þjálfunar og menntunar í greininni. Allir þessir þættir hafa unnið saman við að styrkja og efla gæði íslenskrar ferðaþjónustu.

Á sama tíma og stjórnvöld og aðrir fagaðilar hafa aukna fagmennsku og menntun í ferðaþjónustu meðal opinberra markmiða í stefnumótun sinni fyrir ferðaþjónustu á Íslandi, þá er það mjög einkennilegt að þetta lífsnauðsynlega markmið skuli virt að vettugi við ráðningu hins opinbera í æðsta embætti þjóðarinnar á þessu sviði. Skilaboðin, sem eru send út í þjóðfélagið með þessari ráðningu eru gömul og úreld, þ.e.. að ekki sé þörf neinnar sérþekkingar á sviði ferðaþjónustu og að hver sem er geti starfað við hana með góðum árangri.

Undanfarin ár hafa fjölmargar menntastofnanir á Íslandi byggt upp ferðaþjónustusvið af mismunandi toga. Nægir þar að nefna Menntaskólann í Kópavogi, Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Hólaskóla. Hvernig eiga stjórnendur og nemendur þessara skóla að túlka ráðningu ferðamálastjóra?

Iðnaðaráðherra , Össur Skarphéðinsson, hefur undanfarna daga varið ráðningu orkumálastjóra með því að nýráðinn orkumálastjóri, hafi af öllum umsækjendum haft mesta menntun, reynslu og sérþekkingu á sviði orkumála, að hann hefði af þessari ástæðu brotið landslög og stjórnarskrá ef hann hefði hafnað honum. Það skýtur því skökku við að hann skuli ráði ráða líffræðing í embætti ferðamálastjóra. Líffræðing með enga sérmenntun í ferðaþjónustu, enga sérþekkingu og ekki umtalsverða reynslu af nokkru sviði ferðaþjónustu. Af hverju giltu mismunandi lögmál þegar ráðið var í þessi tvö mikilvægu embætti? Af hverju réði Össur ekki meinatækni eða geislafræðing í embætti orkumálastjóra?

Frá stofnun FHF hefur efling menntunar í ferðaþjónustu verið markmið félagsins. Ráðning iðnaðarráðherra, Össurar Skarphéðinssonar í embætti ferðamálastjóra er því sem blaut tuska í andlit þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa aflað sér háskólamenntunar og þar með sérþekkingar á sviði ferðamála," samkvæmt tilkynningu frá FHF.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert