Verktakar tryggi sig gegn göllum

Byggingavinna
Byggingavinna mbl.is/Kristinn

Göllum í nýbyggingum hefur fjölgað undanfarið, það er óumflýjanleg staðreynd. Réttur þeirra sem kaupa af aðila sem byggir og selur eignir í atvinnuskyni er mjög ríkur en þó geta málaferlin verið þung í vöfum. Hinn 1. apríl nk. verður í Danmörku lögfest skyldutrygging verktaka gegn göllum í nýbyggingum. Slíkt hefur ekki verið skoðað hér en formaður Húseigendafélagsins telur það sjálfsagt.

Tryggingin er til tíu ára og fylgir eigninni. Ljóst er að með því að lögfesta hana mun byggingarkostnaður hækka og þar með íbúðaverð en Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, telur aukin útgjöld jafnvel réttlætanleg, þ.e. ef með þeim er hægt að komast hjá kostnaðarsömum málaferlum.

Loftur Árnason, varaformaður Mannvirkja – félags verktaka, segir byggingarfyrirtækin bera ábyrgð nú þegar og ef fram koma gallar þá eigi menn kröfu á þau. Hann er sammála Sigurði Helga um að slík trygging geti komið neytendum til góða ef komi til gjaldþrota hjá fyrirtækjunum og telur ekkert því til fyrirstöðu að viðskiptaráðherra skoði málið. Hann telur þó að það muni vart skipta miklu máli þar sem tryggingafélögin muni jú verja sig einnig.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert