Verð á þjónustu Vodafone, að frátöldu verði á Vodafone frelsi, hækkar um 4,4% þann 1. júní samvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar félagsins.
Í tilkynningu frá félaginu segir að ástæður verðbreytinganna séu kostnaðarhækkanir í rekstri en vísitala neysluverðs hafi hækkað um 12,4% frá því verðskrá Vodafone var hækkuð síðast. Launaskrið hafi á sama tíma verið 10% og aðföng um 20–30%, meðal annars vegna gengisþróunnar.