Samkomulag náðist við Holland
Bloggað um fréttina
-
Gestur GuðjónssonAfar dýrmætt samkomulag
-
Björn HeiðdalSökudólgurinn fundinn!!
-
Eiríkur Ingvar IngvarssonAlmenningur á Íslandi borgar brúsan
-
Stefán Friðrik StefánssonSamningar og eftirmálar IceSave-málsins
-
Magnús Helgi BjörgvinssonHvert fóru peningarnir?
-
Johann Trast PalmasonHollendingar til fyrirmyndar !
-
Þórhallur KristjánssonVantar meiri upplýsingar
-
Halla RutFrysta eigur þeirra sem eiga skuldina.
-
Kristbjörg ÞórisdóttirHver borgar svo af láninu?
-
Haraldur Rafn IngvasonVerstu hnútarnir að leysast
-
BLOGGERgott mál .
-
Anna Sigrún BaldursdóttirGlæsilegt!
-
Júlíus SigurþórssonVerður að leyfa okkur að fylgjast með!
Hollensk og íslensk stjórnvöld hafa náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.
Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta í dag en þeir eru báðir staddir í Washington.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ráðherrarnir fagni því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos segist einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.
Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.
Til baka








Senda inn efni



