Mjög dregur úr ættleiðingum

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar voru 48 einstaklingar ættleiddir á Íslandi árið 2007. Þetta er talsvert lægri tala en undanfarin ár en árið 2005 voru ættleiðingar 75 og 76 árið 2006. Árið 2007 voru stjúpættleiðingar 27 en frumættleiðingar voru 21.

Hagstofan segir, að frumættleiðingum frá útlöndum hafi fækkað umtalsvert frá árinu 2005. Það ár voru frumættleiðingar frá útlöndum fleiri en nokkurt annað ár eða 41 talsins. 35 þessara barna komu frá Kína. Árið 2006 voru frumættleiðingar frá útlöndum 19 og 17 árið 2007. Bæði árin voru börn frá Kína 13 talsins.

Á tímabilinu 1996–2007 hafa flest erlend frumættleidd börn komið frá Kína, eða 105 stúlkur og þrír drengir. Næstflest börn hafa komið frá Indlandi, 62 stúlkur og 34 drengir.

Stjúpættleiðingar voru óvenju margar árið 2006 miðað við fyrri ár en það ár voru þær 38. Árið 2007 voru stjúpættleiðingar jafnmargar og árið 2005 eða 27 talsins. Líkt og áður var kjörforeldri oftast stjúpfaðir, eða í 22 tilvikum. Í einu tilviki var stjúpmóðir kjörforeldri og fjórir einstaklingar í staðfestri samvist ættleiddu barn maka síns.

Með hugtakinu stjúpættleiðing er átt við ættleiðingu á barni  eða kjörbarni maka umsækjanda. Með hugtakinu frumættleiðing er um að ræða ættleiðingu á barni sem ekki er barn maka umsækjanda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert