Lýst eftir Robert Dariusz Sobiecki

Robert Dariusc Sobiecki
Robert Dariusc Sobiecki

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Robert Dariusz Sobiecki, 19 ára. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eða dvalarstað eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 444-1100.

Hæstiréttur dæmdi Robert Dariusz Sobiecki í 3 ára fangelsi í síðustu viku fyrir að nauðga stúlku á salerni Hótels Sögu í mars á síðasta ári. Málið var lengi í réttarkerfinu en Robert Dariusz var upphaflega sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæstiréttur ómerkti þann dóm og vísaði málinu aftur til héraðsdóms, sem dæmdi hann þá í 3 ára fangelsi.

Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segir að Robert Dariusz Sobiecki hafi verið í farbanni þar til dómur féll í Hæstarétti. Fangelsismálayfirvöld hafa heimild til þess að gefa út handtökuskipun þegar dómur fellur þegar nauðsyn þykir og það var gert í þessu tilviki.

Að sögn Páls hafa yfirvöld ekki upplýsingar um hvar Robert Dariusz Sobiecki er að finna en hann mun hefja afplánun um leið  og hann finnst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert