Byrjaðir á grásleppu

Sigin grásleppa á Reyðarfirði.
Sigin grásleppa á Reyðarfirði. Steinunn Ásmundsdóttir

Grásleppukarlar á Bakkafirði eru flestir ef ekki allir komir á stjá út af grásleppunni og lögðu sumir bátar þann 10. mars, segir í fréttatilkynningu frá vefstjóra Langanesbyggðar.


Þar á meðal Var Oddur V Jóhannsson, skipstjóri á Á Ns 191. Hann er búin að vitja netanna og eftir fyrsta hringinn þá komu á land 1200kg  sem er nokkuð gott svona í byrjun vertíðar.

Vefstjóri hafði samband við Odd og var hann þá að draga fjögurra nátta og voru að meðaltali 60-80 stk í trossu. Sagði hann að bátarnir streymdu nú á miðin til að ná plássi á bestu stöðunum.

Jóhann Árnason hjá Toppfiski tjáði vefnum að mikið líf væri komið í þorpið á Bakkafirði þessa dagana, því trillukarlarnir væru í óða önn að koma bátum sínum í stand fyrir vertíðina. Má með sanni segja að fyrsti vorboðinn fyrir austan séu einmitt grásleppukarlarnir.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert