[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Ögmundur Jónasson.

Ögmundur Jónasson. mbl.is/Ómar

Innlent | mbl.is | 6.5.2009 | 15:04

Vill af stað með nýtt sjúkrahús

„Ef ég fæ um þetta ráðið, þá siglum við,“ sagði Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, um byggingu nýs landspítala, á aðalfundi Landspítala (LSH)  í Salnum í Kópavogi í dag. Hann vill því að farið verði af stað með byggingu nýs sjúkrahúss.

„Þegar kynntar voru endurskoðaðar hugmyndir um byggingu nýs Landspítala sagði forstjórinn: Við höfum ekki efni á, að gera ekki neitt. Ég er sammála, en ég get engu lofað á þessu stigi, enda maðurinn í reynd nánast umboðslaus eins og sakir standa, þótt ég hafi hótað því að vera í embætti í tólf ár,“ sagði Ögmundur á léttu nótunum.

Hann sagði hins vegar að skynsamar hugmyndir liggi fyrir um byggingu nýja sjúkrahússins og að hægt sé að færa gild rök fyrir því að ráðast í þær framkvæmdir í ljósi hagræðingar og vegna atvinnupólitíkur.

„Verði ég áfram í embætti mun ég tryggja að málið verði fært upp á vinnuborðið en ekki sett til hliðar. Það er nefnilega hárrétt hjá Huldu Gunnlaugsdóttur, forstjóra Landspítala Háskólasjúkrahúss að það dýrt og óskynsamlegt að leggja árar í bát,“ sagði Ögmundur.

PDF-skrá Ávarp Ögmundar Jónassonar
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær